Dani Carvajal verður frá næstu mánuðina en hann sleit krossband í leik Real Madrid gegn Villarreal í gær.
Þessi 32 ára gamli varnarmaður meiddist eftir baráttu við Yeremy Pino leikmann Villarreal í uppbótartíma og þurfti að bera hann af velli. Hann var algjörlega niðurbrotinn.
Hann staðfesti á samfélagsmiðlinum X að hann væri á leið í aðgerð.
„Hlakka til að byrja endurhæfingaferlið og ég kem dýrvitlaus til baka. Takk fyrir öll skilaboðin," skrifaði Carvajal sem spilar ekki meira á tímabilinu.
Parte médico de Carvajal.#RealMadrid
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) October 6, 2024
Athugasemdir