Fotbolti.net
06.11.21 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Ég er að koma aftur heim"

Barcelona staðfestir ráðningu á Xavi

Xavi er dáður og dýrkaður í Barcelona.

Xavi er dáður og dýrkaður í Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

„Ég er að koma aftur heim," segir Xavi Hernandez. Það er staðfest, hann verður næsti þjálfari Barcelona og gerir samning út tímabilið 2023/24.
Það var staðfest í gær að Barcelona hefði samþykkt að greiða Al Sadd í Katar fimm milljónir evra til að leysa Xavi undan samningi og fá hann heim til Katalóníu.

Börsungar tilkynntu það svo seint í gærkvöldi að væri nýr þjálfari liðsins. Samkomulag er í höfn, Xavi kemur til Barcelona um helgina og verður kynntur opinberlega á mánudaginn þar sem hann mun meðal annars ræða við fréttamenn.

Xavi kvaddi leikmenn sína í Katar í gær. Xavi hefur stýrt Al Sadd frá 2019 með frábærum árangri.

Sem leikmaður vann hann fjölmarga titla með Börsungum. Hann varð átta sinnum Spánarmeistari og vann Meistaradeildina fjórum sinnum. Hann er einn besti miðjumaður í sögu félagsins.

„Ég mun vinna og berjast með ykkur öllum til að komast á þann stað sem við eigum skilið að vera á," segir Xavi.

Þetta minnir óneitanlega á það þegar Pep Guardiola tók við Barcelona á sínum tíma. Hann var þá fyrrum miðjumaður liðsins og hafði verið að þjálfa varaliðið. Undir stjórn Guardiola - með Xavi á miðjunni - þá vann Barcelona allt sem hægt var að vinna og spilaði glimrandi fótbolta.

Það er verk að vinna fyrir Xavi en Barcelona á í miklum fjárhagsörðugleikum út af dýrkeyptum mistökum á leikmannamarkaðnum í bland við kórónuveirufaraldurinn. Liðið er núna í níunda sæti í La Liga.

Sjá einnig:
Fengu Bjarka til að rýna í Xavi - „Snýst um algjöra yfirburði"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.