Zidane ætlar ekki að banna golf
Gareth Bale hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu vegna mikils áhuga á golfi.
Velska landsliðið ætlar að banna honum að spila golf næsta sumar svo hann auki ekki líkur á meiðslum fyrir Evrópumótið.
Stuðningsmenn Real Madrid eru ósáttir með hegðun Bale og hafa kallað eftir því að hann fari í bann frá því að spila golf meðan hann er hjá félaginu.
„Ég er ekki að fara að stöðva neitt, hvorki hjá Gareth né öðrum leikmönnum. Þetta eru fullorðnir menn sem vita vel hvaða kröfur eru gerðar á þá," sagði Zidane, en Bale er meiddur þessa stundina og missir af næstu leikjum liðsins.
„Hann meiddist gegn Alaves og hefur ekki æft með okkur síðan. Í dag gerði hann smá en ekki með restinni af hópnum."
Hér fyrir neðan má svo sjá skemmtilegt myndband af Bale á æfingu Real Madrid í dag.
Athugasemdir