Samningaviðræður hollenska miðjumannsins Gini Wijnaldum við Liverpool ganga erfiðlega.
Hinn þrítugi WIjnaldum verður samningslaus í sumar en hann hefur verið orðaður við Barcelona.
Á borðinu liggur nýr langtímasamningur hjá Liverpool en Wijnaldum hefur ekki viljað samþykkja hann.
Hinn þrítugi WIjnaldum verður samningslaus í sumar en hann hefur verið orðaður við Barcelona.
Á borðinu liggur nýr langtímasamningur hjá Liverpool en Wijnaldum hefur ekki viljað samþykkja hann.
Wijnaldum vill vera áfram hjá Liverpool að sögn Sky Sports en hann vill fá hærri laun og vera nær launahæstu leikmönnum liðsins.
Í augnablikinu er því framtíð Wijnaldum óljós en hann má hefja samningaviðræður við önnur félög þar sem innan við hálft ár er eftir af núverandi samningi hans við Liverpool.
Athugasemdir