Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 07. janúar 2022 22:53
Victor Pálsson
Balogun á leið til Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Middlesbrough mun fá sóknarmanninn Folarin Balogun frá Arsenal í næstu viku á láni.

Blaðamaðurinn virti Fabrizio Romano greinir frá þessu en Nottingham Forest var áður í viðræðum við leikmanninn.

Þær viðræður sigldu hins vegar í strand og er eru nú allar líkur á að Balogun endi á Riverside í Middlesbrough.

Viðræðurnar eru komnar á lokastig og mun Balogun skrifa undir samning út tímabilið í Championship-deildinni.

Balogun spilaði sinn fyrsta leik fyrir Arsenal í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð og hefur komið við sögu fjórum sinnum í vetur.
Athugasemdir
banner
banner