Fotbolti.net
07.02.24 - 11:17
Elvar Geir Magnússon

Uppvakningafótbolti Klinsmann gagnrýndur - „Ætlar þú að segja af þér?“

Jurgen Klinsmann.

Jurgen Klinsmann.

Canon

Mynd: EPA

Þegar Jurgen Klinsmann var ráðinn landsliðsþjálfari Suður-Kóreu í febrúar 2023 bað hann stuðningsmenn og fjölmiðlamenn um að dæma sig eftir Asíubikarinn. Markmið hans var að gera liðið að Asíumeistara í þriðja sinn og í fyrsta sinn í 64 ár.

En Suður-Kórea tapaði óvænt gegn Jórdaníu 2-0 í undanúrslitum í gær, Jórdanía er í 87. sæti FIFA heimslistans eða 64 sætum neðar en Suður-Kórea.

Suður-Kórea átti ekki skot á markið í leiknum og sigur Jórdana fyllilega verðskuldaður.
Asíubikarinn: Spútniklið Jórdaníu í úrslit eftir sigur gegn Son og félögum
TENGT EFNI

Asíubikarinn: Spútniklið Jórdaníu í úrslit eftir sigur gegn Son og félögum

Í kóreska liðinu má finna stórstjörnuna Son Heung-min hjá Tottenham og sóknarmanninn Hwang Hee-chan hjá Wolves auk leikmanna á borð við Lee Kang-in hjá Paris St-Germain.

Eftir leik fékk Klinsmann spurninguna: Ætlar þú að segja af þér?

„Ég hef ekki planað að gera eitt né neitt. Ég ætla að greina mótið, fara aftur til Kóreu og ræða við stjórn sambandsins um hvað var gott og hvað var slæmt á mótinu," svaraði Klinsmann.

Suður-Kórea vann bara einn leik í venjulegum leiktíma á mótinu og leikaðferð Klinsmann verið harðlega gagnrýnd í fjölmiðlum í landinu. Leikur liðsins hefur verið kallaður „uppvakningafótbolti (zombie football)“ og sagt að hann hafi einungis reitt sig á einstaklingsgæðin innan hópsins.
Heung-Min Son og Jo Hyeon-Woo.

Heung-Min Son og Jo Hyeon-Woo.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.