Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. maí 2021 10:00
Elvar Geir Magnússon
Meistaraleg ákvörðun að sækja Cavani
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Mynd: Getty Images
Dwight Yorke, fyrrum sóknarmaður Manchester United, hrósar Edinson Cavani í hástert.

Úrúgvæsi sóknarmaðurinn er kominn með fjórtán mörk á tímabilinu en hann skoraði bæði mörk United í 3-2 tapi gegn Roma í gær.

United vann 6-2 í fyrri leiknum og mætir Villarreal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

„Frammistaða hans hefur verið mögnuð og hann hefur komið með nýja vídd í spilamennsku liðsins. Hann er orkumikill. hann vildi spila í ensku úrvalsdeildinni og hefur sýnt hvað hann getur," segir Yorke.

„Þrátt fyrir að vera 34 ára þá er hann í svakaleg góðu standi, hreyfanleiki hans er mikill og þú kaupir þér ekki reynslu. Það hefur allt gengið fullkomlega á þessu tímabili en munum við halda honum og mun hann skila því sama á næsta ári? Það hefur allavega reynst meistaraleg ákvörðun hjá Ole Gunnar Solskjær að fá hann."
Athugasemdir
banner