Fotbolti.net
07.06.17 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Eyjólfur: Tóku vitlausan afleggjara og fóru Krýsuvíkurleiðina

Auglýsing
Eyjólfur Héðinsson.

Eyjólfur Héðinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
„Við erum búnir að fara smá Krýsuvíkurleið í þessum bikar,\" sagði Eyjólfur Héðinsson eftir að ljóst var að liðið mætir KR í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins.
„Við fáum KR í 8-liða, við mættum Val í 16-liða og svo fengum við Þrótt Vogum í 32-liða. Við fórum Krýsuvíkurleið þar líka því það voru ungir gaurar í liðinu sem tóku vitlausan afleggjara og tóku Krýsuvíkurveginn. Við erum á Krýsuvíkurleið í þessum bikar og segjum að það endi á bikarúrslitum hér í ágúst.\"

Eyjólfur er að glíma við meiðsli á ökkla og hann var ekki með í 3-0 tapinu gegn FH um helgina.

„Við vorum nokkrir meiddir saman að horfa á þetta. Við vorum að tala um að það væri miklu erfiðara að vera uppi í stúku og geta ekki haft áhrif. Við vonum að við verðum klárir í næsta leik. Það er ekkert sérstakt að sitja uppi í stúku,\" sagði Eyjólfur en rúm vika er í næsta leik Stjörnunnar gegn Víkingi R.

Hér að ofan má sjá viðtali í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.