Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 07. júní 2021 15:20
Elvar Geir Magnússon
PSG býður Donnarumma risasamning
Gianlugi Donnarumma.
Gianlugi Donnarumma.
Mynd: EPA
Fréttir berast af því að viðræður Paris Saint-Germain við Gianlugi Donnarumma séu að þokast áfram og að franska stórliðið bjóði ítalska markverðinum 10 milljónir evra á ári.

Donnarumma hefur ekki framlengt við AC Milan en samningur hans rennur út 30. júní. Talið var að hann myndi ganga í raðir Juventus.

PSG hefur lengi haft áhuga á Donnarumma og vill fá hann til sín, þrátt fyrir að hafa framlengt við Keylor Navas.

Sagt er að PSG leggi mikla áherslu á að reyna að klára samning við Donnarumma í þessari viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner