Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 07. júní 2022 19:00
Elvar Geir Magnússon
Roberto framlengir um eitt ár
Mynd: EPA
Eftir langar og flóknar viðræður hefur Sergi Roberto samþykkt að gera nýjan samning við Barcelona út næsta tímabil.

Xavi, stjóri Börsunga, telur að Roberto sé enn mikilvægur í sínum leikmannahópi þó þessi 30 ára leikmaður hafi aðeins spilað 567 mínútur í öllum keppnum á nýliðnu tímabili.

Hann var mikið frá vegna meiðsla.

Roberto er reynslumikill og fjölhæfur en hann getur spilað á miðjunni eða sem bakvörður. Hann hefur leikið 316 leiki fyrir Barcelona.

Börsungar höfnuðu þrettán stigum á eftir meisturum Real Madrid á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner