„Lífsnauðsynlegur sigur, vorum brotnir og litlir í okkur fram eftir vikunni eftir mjög slæmt tap um síðustu helgi (gegn Kára). Þetta snerist um grunnvinnuna í fyrri hálfleik; að loka sjoppunni og stöðva blæðinguna eftir að hafa fengið á okkur sex mörk. Menn voru særðir og þurftu að grafa djúpt eftir þessu. Að fá svona sigurmark í jöfnum leik er hrikalega sætt og vonandi innspýting í tímabilið," sagði Hörður Snævar Jónsson, þjálfari Dalvíkur/Reynis, eftir sigur liðsins á Þrótti Vogum í 2. deild í gær.
Sigurinn var annar sigur Dalvíkinga í mótinu og sá fyrsti síðan í fyrstu umferð.
Sigurinn var annar sigur Dalvíkinga í mótinu og sá fyrsti síðan í fyrstu umferð.
Lestu um leikinn: Dalvík/Reynir 1 - 0 Þróttur V.
„Við vissum að eitt augnablik gæti klárað þetta, Máni Dalstein hefur aldrei hitt boltann svona vel á lífsleiðinni og mun sennilega ekki gera þetta aftur. Þetta var geggjað skot! Hann er nítján ára heimamaður, kemur fyrir tímabilið eftir að hafa verið í flottu unglingastarfi hjá KA. Maður fann það í vikunni hvað þetta (tapið) um síðustu helgi særði hann mikið. Hann veit örugglega sjálfur að við vorum 50-50 að hafa hann í liðinu í dag. Við ákváðum að veðja á hjartað á mönnum, fá menn sem við finnum að þetta skiptir raunverulegu máli. Máni er einn af þeim, lagði líf og sál í þetta og átti skilið að klára þetta svona."
Sigurmarkið var draumaskot á 88. mínútu, þrumuskot fyrir utan teig sem söng í nærhorninu. Hörður fagnaði af innlifun og sagðist hafa íhugað að fagna eins og Auðun Helgason, þjálfari Þróttar Vogum, sem tók sprettinn yfir boðvanginn hjá þjálfurum Hauka í leik liðanna í fyrstu umferð og vakti það eðlilega litla kátínu hjá teymi Hauka.
„Það voru allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið, vildu allir fá fyrirgjöf því enginn hélt að Máni gæti skotið svona," sagði Hörður og hló. „Geggjað augnablik og fögnuðurinn var eftir því. Maður missti sig aðeins í gleðinni, ég hljóp þó allavega í rétta átt (meðfram hliðarlínunni). Mig langaði að leika eftir Auðun Helgason í fyrstu umferð og hlaupa yfir bekkinn. En þar sem hann var ekki þar (tók út leikbann) þá lét ég það vera og fór í hina áttina."
„Þegar þú tapar 6-0, óboðlegt tap, þá hugsar maður allt sem þjálfari. Ég fann fyrir ábyrgð og pressu í vikunni að laga þetta og þegar það kemur svona á 88. mínútu þá verður maður að fá að fagna aðeins þó að röddin fari líka," sagði Hörður.
Í lok viðtalsins, sem má sjá í heild sinni í spilaranum efst, er Hörður spurður frekar út í möguleg áhrif sigursins og framhaldið í deildinni. Dalvík/Reynir mætir næst grönnunum í Magna á Grenivík og verður það í fyrsta sinn á ævinni sem Hörður fer til Grenivíkur.
2. deild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Haukar | 6 | 5 | 0 | 1 | 19 - 6 | +13 | 15 |
| 2. Kári | 6 | 3 | 2 | 1 | 19 - 10 | +9 | 11 |
| 3. Selfoss | 6 | 3 | 2 | 1 | 13 - 11 | +2 | 11 |
| 4. Kormákur/Hvöt | 6 | 3 | 1 | 2 | 15 - 6 | +9 | 10 |
| 5. KFA | 6 | 3 | 0 | 3 | 17 - 12 | +5 | 9 |
| 6. Fjölnir | 6 | 3 | 0 | 3 | 17 - 13 | +4 | 9 |
| 7. Hvíti riddarinn | 6 | 1 | 4 | 1 | 7 - 7 | 0 | 7 |
| 8. Þróttur V. | 6 | 2 | 1 | 3 | 6 - 8 | -2 | 7 |
| 9. Dalvík/Reynir | 6 | 2 | 1 | 3 | 6 - 12 | -6 | 7 |
| 10. KFG | 6 | 2 | 0 | 4 | 10 - 20 | -10 | 6 |
| 11. Víkingur Ó. | 6 | 1 | 2 | 3 | 10 - 17 | -7 | 5 |
| 12. Magni | 6 | 1 | 1 | 4 | 6 - 23 | -17 | 4 |






















