Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. júlí 2022 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forest að ganga frá kaupum á bakverði Bayern Munchen
Mynd: EPA
Samkvæmt breskum fjölmiðlum er Nottingham Forest að ganga frá kaupum á tveimur bakvörðum. Það eru þeir Neco WIlliams, hægri bakvörður Liverpool, og Omar Richards, vinstri bakvörður Bayern Munchen.

Meira hefur verið fjallað um skipti Williams til Forest en nýliðarnir i ensku úrvalsdeildinni virðast vera að landa Richards líka.

Hann er 24 ára gamall bakvörður sem Bayern Munchen fékk frá Reading í fyrra. Í vetur hefur hann komið við sögu í sautján keppinsleikjum með þýsku meisturunum.

Talið er að Forest muni greiða ríflega átta milljónir punda fyrir Richards. Ef Forest landar bæði Williams og Richards þá hefur liðið styrkt sig með sex leikmönnum í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner