Fotbolti.net
07.08.16 - 18:10
Ívan Guðjón Baldursson

Karen Nóadóttir: Þurfum að hysja upp um okkur

Auglýsing
Karen Nóadóttir: Þurfum að hysja upp um okkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hertz
Karen Nóadóttir, fyrirliði Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna, segist hafa búist við erfiðum leik gegn ÍA fyrr í dag.

Þór komst yfir í fyrri hálfleik en Megan Dunnigan jafnaði fyrir ÍA í þeim síðari og komust Skagakonur, sem verma botnsætið, nálægt því að stela sigrinum.
„Þetta var drulluerfiður leikur, það hefur alltaf verið erfitt að koma hingað,\" sagði Karen eftir jafnteflið.

„Þær eru með þrusulið, þó þær séu svona neðarlega á töflunni þá hefur það ekkert að segja þegar komið er út á völlinn. Þær eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.\"

Karen var svo spurð út í frammistöðu síns eigins liðs og viðurkenndi að spilamennskan hefði getað verið betri.

„Við vorum að gera sjálfum okkur erfitt fyrir. Við vorum að taka rangar ákvarðanir. Við getum alveg hysjað upp um okkur brækurnar, við þurfum svo sannarlega að gera það.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.