Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. ágúst 2022 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hudson-Odoi má fara frá Chelsea - Mikill áhugi á honum
Mynd: Getty Images

Callum Hudson-Odoi leikmaður Chelsea hefur beðið um að fara frá félaginu til að fá tækifæri á því að spila meira.


Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur hann fengið leyfi til að fara frá félaginu á láni. Borussia Dortmund, Juventus og tvö úrvalsdeildarfélög hafa áhuga á að fá leikmanninn. Fabrizio Romano segir að Southampton og Leicester City séu ensku félögin.

Hudson-Odoi hefur ekki náð að festa sig í sessi síðan hann fékk sitt fyrsta tækifæri tímabilið 2017/18. Hann kom aðeins við sögu í 15 deildarleikjum á síðustu leiktíð en meiddist á hásin og var frá út tímabilið.

Hann ferðaðist með liðinu til Bandaríkjanna í æfingaferð fyrir tímabilið en var ekki í hópnum í gær þegar liðið vann Everton 1-0.


Athugasemdir
banner
banner