Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 07. september 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Fowler og Hasselbaink verða í viðtali hjá Síminn Sport
Robbie Fowler.
Robbie Fowler.
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi en líkt og á síðasta tímabili verða leikir þar í beinni hjá Síminn Sport.

Í fyrra fóru sérfræðingar Símans út á nokkra leiki en það verður ekki hægt í byrjun þessa tímabils vegna kórónaveirunnar.

Í stað þess verða stjörnur úr enska boltanum af og til í viðtölum í tengslum við leikina hjá Símanum Sport.

Um helgina verður Robbie Fowler í viðtali í tengslum við leik Liverpool og Leeds á laugardaginn klukkan 16:30 en hann spilaði á sínum tíma með báðum þessum félögum.

Fyrir leik Chelsea og Liverpool um aðra helgi verður Jimmy Floyd Hasselbaink síðan í viðtali.


Athugasemdir
banner
banner
banner