Fotbolti.net
07.09.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sheffield United að næla í þrjá nýja leikmenn

Jayden Bogle.

Jayden Bogle.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United er nálægt því að bæta við sig þremur nýjum leikmönnum.
Félagið er að kaupa tvo bakverði frá Derby County, þá Jayden Bogle og Max Lowe, fyrir samanlagt 15 milljónir punda.

Kantmaðurinn Oliver Burke, sem var keyptur til RB Leipzig fyrir 13 milljónir punda þegar hann var 19 ára, er einnig á leið til félagsins frá West Brom. Hann mun koma til Sheffield United í skiptum fyrir sóknarmanninn Callum Robinson.

Burke er 23 ára, Bogle tvítugur og Lowe 23 ára.

Sheffield United var spútniklið ensku úrvalsdeildarinnar í fyrra og hafnaði í níunda sæti en er núna spáð 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar
Oliver Burke.

Oliver Burke.

Canon

Mynd: Getty Images

Max Lowe.

Max Lowe.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.