Tvö lið eru á eftir bakverðinum Baba Rahman sem spilar með Chelsea samkvæmt heimildum Goal.com.
Rahman hefur lítið sem ekkert fengið að spila hjá Chelsea en félagið keypti hann á 14 milljónir punda frá Augsburg í Þýskalandi.
Bakvörðurinn hefur spilað með Chelsea síðan 2015 en á aðeins að baki 15 deildarleiki. Hann lék með Mallorca á láni á síðustu leiktíð.
Rahman hefur áður tvisvar sinnum verið sendur á lán til Schalke og lék einnig með Reims í Frakklandi.
Þessi landsliðsmaður Gana er á óskalista bæði Watford og Middlesbrough sem vilja fá hann lánaðan.
Félagaskiptaglugginn í Championship-deildinni lokar þann 16. október og hafa félögin því enn tíma til að semja.
Athugasemdir