Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, segir að allir vilji sjá liðið klikka. Liverpool varð enskur meistari í sumar eftir 30 ára bið og freistar þess nú að verja titilinn.
„Ég held að það sé erfiðast að halda sér á toppnum. Allir vilja sjá þig klikka þegar þú nærð toppnum. Það er það sem lífið snýst um, sérstaklega þessa dagana," sagði Van DIjk.
„Ég vil gefa allt sem ég get þar til að ég hætti og ég vil ekki hafa neina eftirsjá. Það yrði versta tilfinningin."
„Það eru krefjandi tímra framundan. Við erum meistarar - eitthvað sem tók langan tíma. Við ættum að njóta þess."
Athugasemdir