Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 08. janúar 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Stærstu félög Evrópu á eftir 16 ára leikmanni Birmingham
Jude Bellingham, miðjumaður Birmingham, er gríðarlega eftirsóttur þessa dagana.

Bellingham er einungis 16 ára gamall en hann hefur þrátt fyrir það spilað 23 leiki í Championship deildinni.

Barcelona, Bayern Munchen, Dortmund, Liverpool, Manchester United og Arsenal hafa öll áhuga á honum.

Fyrr á þessu tímabili varð Bellingham yngsti leikmaðurinn í sögu Birmingham.

Birmingham mun væntanlega halda Bellingham innan sinna raða þar til í sumar en þá er líklegt að hann gangi til liðs við eitthvað af stóru félögunum.
Athugasemdir