Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 08. febrúar 2021 20:50
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool hefur mikinn áhuga á Raphinha
Raphinha
Raphinha
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur mikinn áhuga á því að fá brasilíska vængmanninn Raphinha frá Leeds United. France Football greinir frá.

Leeds keypti Raphinha frá Rennes síðasta sumar en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur fjögur í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.

Enska félagið greiddi um það bil 20 milljónir punda fyrir Raphinha og hefur hann verið einn af lykilmönnum Leeds á leiktíðinni.

Samkvæmt France Football hefur Liverpool fylgst vel með Raphinha undanfarnar vikur og er hann á lista yfir leikmenn sem félagið vill kaupa eftir tímabilið.

Raphinha hefur einnig spilað með Avaí, Vitoria Guimaraes og Sporting á ferlinum en brasilíski leikmaðurinn er einnig með ítalskt vegabréf sem auðveldar honum að fá atvinnuleyfi á Bretlandseyjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner