Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 08. mars 2020 16:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Chelsea og Everton: Gilmour bestur
Mynd: Getty Images
Chelsea sigraði Everton afskaplega sannfærandi fyrr í dag í ensku úrvasldeildinni.

Pedro, Willian, Olivier Giroud og Mason Mount skoruðu mörk Chelsea í 4-0 sigri. Everton liðið var slappt og ógnaði Chelsea lítið.

Sky Sports tók saman einkunnir leikmanna fyrir frammistöðu þeirra í leiknum. Billy Gilmour fær titilinn maður leiksins en þessi átján ára miðjumaður var að byrja sinn fyrsta leik í deildinni í dag.

Mason Mount, Pedro og Willian fá einnig 8 í einkunn sem var það hæsta sem gefið var í dag.

Einkunnir Sky Sports:
Chelsea:
Kepa (7), Azpilicueta (7), Rudiger (7), Zouma (7), Alonso (7), Barkley (7), Gilmour (8), Mount (8), Willian (8), Giroud (7), Pedro (8).

Varamenn: Kames (6), Anjorin (6)

Everton:
Pickford (7), Sidibe (6), Keane (6), Holgate (6), Digne (6), Bernard (5), Davies (5), Gomes (5), Sigurdsson (5), Calvert-Lewin (6), Richarlison (6).

Varamenn: Walcott (5), Kean (5), Gordon (5).

Maður leiksins: Billy Gilmour.
Athugasemdir
banner
banner
banner