Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 08. mars 2023 11:43
Elvar Geir Magnússon
Walker beraði sig á bar og gæti verið í vondum málum
Mynd: EPA
Enskir fjölmiðlar hafa birt myndbönd úr öryggismyndavélum frá bar í Manchesterborg þar sem Kyle Walker, varnarmaður Manchester City, var á fylleríi á sunnudaginn.

City vann Newcastle 2-0 í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og mætti síðan með vinum sínum á bar á sunnudeginum.

Á myndbandsupptökum sést hann meðal annars draga niður buxurnar fyrir framan tvær konur og sýna kynfæri sín. Hann gæti átt yfir höfði sér lögreglurannsókn en lögum samkvæmt er bannað að bera sig á almannafæri.

Á upptökunum sést hann með ýmis drykkjulæti á þeim 90 mínútum sem hann var inni á barnum og meðal annars er hann í kossaflensi við konu sem er ekki eiginkona hans.

The Sun fjallaði fyrst um málið og fleiri enskir fjölmiðlar hafa svo tekið það upp. Walker lék gegn Newcastle en Pep Guardiola gaf svo liði sínu tveggja daga frí eftir leikinn.

Manchester City hafnaði því að senda frá sér ummæli eftir að Guardian óskaði eftir því, félagið lítur á einkalíf Walker sem persónulegt mál hans. Blaðið hefur einnig óskað eftir viðbrögðum lögreglunnar í Manchester.



Athugasemdir
banner
banner
banner