Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, gerir sér grein fyrir því að hans félag stendur mun betur fjárhagslega en mörg önnur félög nú þegar heimsfaraldurinn er í gangi.
Hann er meðvitaður um að þetta gæti nýst United þegar félagaskiptaglugginn opnar aftur.
„Það kemur að því að allt fer í eðlilegt horf í fótboltanum og það er gríðarlega mikilvægt að við verðum tilbúnir þegar það gerist," segir Solskjær við Sky Sports.
„Við viljum verða bestir í öllu og núna gefst meiri tími til að funda, ræða um leikmenn og setja saman áætlanir. Við höfum farið yfir málin með þjálfarateyminu, skoðað leiki og rætt hluti á fjarfundum."
„Hver veit hvernig markaðurinn verður svo? Hver veita hvaða félög þurfa að selja leikmenn? Það gætu opnast möguleikar sem við gætum nýtt okkur. Man United er eitt það félag sem stendur best fjárhagslega."
Öflugir auglýsingasamningar gera að verkum að United er ekki eins háð leikdagstekjum og sjónvarpssamningum eins og flest önnur félög í deildinni.

Jadon Sancho, Jack Grealish og James Maddison hafa allir verið orðaðir við Manchester United.
Athugasemdir