Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. apríl 2021 23:30
Aksentije Milisic
Lopez markvörður vann heimavinnuna: Tadic skýtur oft beint
Mynd: Getty Images
Pau Lopez, markvörður AS Roma, varði vítaspyrnu frá Dusan Tadic í 1-2 útisigri Roma á Ajax í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Ajax komst yfir í leiknum og þegar staðan var 1-0 fékk liðið vítaspyrnu. Tadic, sem hafði skorað úr sautján vítaspyrnum í röð, steig á punktinn og skaut beint á markið. Lopez stóð kyrr og varði spyrnuna.

Í kjölfarið svaraði Roma með jöfnunarmarki og þremur mínútum fyrir leikslok kom sigurmarkið. Gífurleg mikilvæg varsla hjá Lopez sem segist hafa fylgst með Tadic fyrir leik og hvernig vítaspyrnur hann tekur.

„Ég vissi að Tadic skýtur oft beint á markið. Ég horfði á vítaspyrnunar hans með Marco Savorani þegar við undirbjuggum okkur fyrir leikinn," sagði Lopez.

„Ég stóð og beið. Ég var heppinn í þetta skiptið."

„Við stóðum okkur vel þó við hefðum geta komið í veg fyrir markið þeirra. Ég er sáttur með sigurinn en þetta er ekki búið."

Hér fyrir neðan má sjá vörsluna hjá Lopez gegn Tadic.


Athugasemdir
banner
banner