lau 08. maí 2021 20:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Elías hélt hreinu og Aron Jó kom inn á í fyrri hálfleik
Elías Rafn Ólafsson
Elías Rafn Ólafsson
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Elías Rafn Ólafsson varði mark Fredericia í 3-0 sigri á HB Köge í gær. Elías er lánsmaður frá Midtjylland og er á láni út leiktíðina.

Fredericia er í 5. sæti og getur efst endað í 4. sæti í dönsku B-deildinni.

Lamia tapaði gegn OFI Crete í fallumspilinu í grísku Ofurdeildinni í dag. Theodór Elmar Bjarnason var ekki í hópnum hjá Lamia annan lekinn í röð.

Ein umferð er eftir af deildinni og getur Lamia neðst endað í 12. sæti og efst í 9. sæti. Liðið er sem stendur í 10. sæti og öruggt um að falla ekki.

Í bandarisku MLS-deildinni var Arnór Ingvi Traustason í byrjunarliði New England Revolution þegar liðið tapaði 2-0 gegn Nashville á útivelli. Arnór lék fyrstu 64 mínútur leiksins. New England er sem stendur í toppsæti Austurdeildarinnar en 4. umferðin er nýhafin.

Loks lék Aron Jóhannsson síðustu 63 mínúturnar í 1-2 útisigri Lech Poznan í pólsku Ekstraklasa. Sigurinn var gegn liðið Wisla. Aron kom inn á sem varamaður á 28. mínútu.

Lech er í 9. sæti deildarinnar og getur í besta falli endað í 8. sæti sem eru mikil vonbrigði. Ein umferð er eftir af deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner