Fotbolti.net
08.06.17 - 21:25
Stefnir Stefánsson

Katrín Ásbjörns: Gerðum það besta úr aðstæðunum

Auglýsing
Katrín Ásbjörnsdóttir í leiknum í Dublin í kvöld.

Katrín Ásbjörnsdóttir í leiknum í Dublin í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Katrín Ásbjörnsdóttir var nokkuð kát þrátt fyrir markalaust jafntefli við Íra í æfingaleik í kvöld.

„Mjög erfiðar aðstæður, mjög blautt í dag og pollar út um allan völl, en bara krefjandi fyrir okkur og við fengum góðan leik\" sagði Katrín Ásbjörnsdóttir eftir markalaust jafntefli Íslands gegn Írlandi en leikurinn var leikinn í mikilli rigningu við erfiðar aðstæður.

„Þær voru þéttar til baka og við vorum að reyna að komast fyrir aftan þær. Mér fannst við alveg geta það á köflum. Við gerðum það besta úr aðstæðunum og mér fannst við vera að spila vel á köflum. Svo að við erum alveg sáttar.\" hélt Katrín áfram.

Aðspurð að því hvort að eitthvað hefði komið þeim á óvart hjá Írska liðinu í dag sagði Katrín að svo hefði ekki verið.

„Það leggst bara vel í okkur, það verður mjög krefjandi verkefni. Það er leikur sem að við viljum taka,\" sagði Katrín aðspurð út í næsta verkefni en landsliðið mætir Brössum í undankeppni heimsmeistaramótsins.

Sjáðu viðtalið í heild sinni í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.