Fotbolti.net
08.06.22 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Félagaskipti Kristensen til Leeds svo gott sem frágengin

Félagaskipti Kristensen til Leeds svo gott sem frágengin
Canon

Mynd: EPA

Fabrizio Romano greinir frá því að félagaskipti danska bakvarðarins Rasmus Nissen Kristensen eru svo gott sem staðfest eftir að Leeds United náði samkomulagi um kaupverð við Red Bull Salzburg.

Leeds er talið greiða um 15 milljónir punda fyrir Nissen sem hefur alltaf átt sér þann draum að spila í ensku úrvalsdeildinni.

Nissen hefur verið fastamaður í liði Salzburg undanfarin ár og skoraði 7 mörk í 29 deildarleikjum á síðustu leiktíð, auk þess að skora 3 mörk í 6 leikjum í austurríska bikarnum.

Nissen er annar leikmaðurinn sem Jesse Marsch stelur frá Salzburg í sumar eftir komu bandaríska miðjumannsins Brenden Aaronson.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.