Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndavélar á öllum völlum í 2. deild
Mikilvæg framför fyrir 2. deild.
Mikilvæg framför fyrir 2. deild.
Mynd: KSÍ
KSÍ hefur náð samkomulagi við Spiideo um myndavélar fyrir alla velli í 2. deild karla og kvenna.

Þetta er mikilvæg framkvæmd sem farið er í til að stuðla að þróun og hagkvæmni í deildunum. Fyrstu myndavélarnar hafa þegar verið afhentar og teknar í notkun.

Félögin fá aðgang að sameiginlegum grunni þar sem allir leikir í viðkomandi deild eru vistaðir, auk aðgangs að greiningarhugbúnaði fyrir þjálfarateymin. Þjálfarar geta þannig fylgst með öllum leikjum í rauntíma í hvaða snjalltæki sem er og geta nýtt sér greiningarskýrslur eftir hvern leik til að bæta frammistöðu.

Þar að auki geta félögin nýtt Spiideo tæknina til að búa til beinar útsendingar frá leikjum sínum og lýst þeim, ásamt því að nýta mörk og annað efni úr leikjum til birtingar á samfélagsmiðlum til að efla áhuga og þátttöku sinna fylgjenda.

Fyrsta ár verkefnisins er að öllu leyti kostað af KSÍ og undirstrikar áherslu KSÍ á nýsköpun og framfarir í íslenskri knattspyrnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner