Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 08. ágúst 2020 06:00
Aksentije Milisic
Faðir David Silva: Hann er hrifinn af ítölsku deildinni
Mynd: Getty Images
Fernando Silva, faðir David Silva, hefur gefið það sterklega í skyn að sonur hans muni ganga í raðir Lazio.

Silva yfirgefur Manchester City eftir tímabilið og hefur verið sterklega orðaður við Lazio undanfarna daga.

„David hefur sagt við mig í töluverðan tíma að honum hafi langað að spila fyrir Manchester City í tíu ár og fara síðan," sagði Fernando.

„Ég get staðfest það að hann er hrifinn af ítölsku deildinni og hann vill spila þarna. Hann sagði mér að hann geti spilað til fertugs."

„Hann er með mörg tilboð í höndunum eins og er en ég myndi vilja sjá hann fara til Lazio, þó að Róm sé langt í burtu, þá væri þetta stórt tækifæri fyrir hann."

Silva skoraði sex mörk og lagði upp tíu 27 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner