Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 08. ágúst 2020 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvíta-Rússland: Willum hjálpaði til við að landa sigri
Willum í leik með U21 landsliðinu.
Willum í leik með U21 landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma í sigri BATE á Gorodeja í úrvalsdeildinni í Hvíta-Rússlandi.

BATE komst 1-0 yfir strax á fyrstu mínútu leiksins og eftir það var ekki litið til baka.

Leikurinn endaði með 1-0 sigri BATE og hjálpaði Willum liðinu að landa sigrinum.

BATE er eftir sigurinn í dag í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Shakhtyor Soligorsk.

Sjá einnig:
Fimm leikmenn sem gera tilkall í landsliðið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner