Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 08. ágúst 2022 07:25
Brynjar Ingi Erluson
Bróðir Arnautovic staðfestir tilboðið frá Man Utd
Marko Arnautovic gæti farið til Man Utd
Marko Arnautovic gæti farið til Man Utd
Mynd: EPA
Danijel Arnautovic, bróðir austurríska framherjans Marko Arnautovic, hefur staðfest tilboð Manchester United í framherjann en þetta staðfestir hann í viðtali við austurríska miðilinn Kurier.

Manchester United lagði fram 7,6 milljón punda tilboð í Arnautovic í gær en ítalska félagið Bologna hafnaði boðinu.

Arnautovic er 33 ára gamall og þekkir vel til í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað fyrir West Ham frá 2017 til 2019.

Hann skoraði 14 mörk í Seríu A með Bologna á síðustu leiktíð en gæti nú óvænt verið á leið til United.

„Það er satt að það kom inn tilboð frá mjög þekktu liði. Ég er í sambandi við Bologna og við sjáum hvað gerist," sagði Danijel við Kurier.

Arnautovic er samningsbundinn Bologna til næstu tveggja ára.
Athugasemdir
banner
banner