08.09.20 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Daley Blind byrjaður að æfa aftur

Daley Blind.

Mynd: Getty Images

Daley Blind.

Mynd: Getty Images
Daley Blind er byrjaður að æfa aftur á fullu með Ajax.
Blind hneig niður í æfingaleik liðsins við Hertha Berlín í síðasta mánuði. Hann hefur hvílt sig síðan og hefur farið í rannsóknir. Ekkert sem kom út úr þessum rannsóknum bendir til þess að hann þurfi að vera utan vallar lengur.
Blind fann fyrir hjartsláttartruflunum eftir leik við Valencia í Meistaradeildinni í desember og spilaði ekki í þrjá mánuði í kjölfarið. Komist var að því að Blind væri með bólgur í hjarta en hann sneri aftur á völlinn í febrúar án vandræða.
Blind hefur undanfarin tvö ár spilað með Ajax en hann var áður á mála hjá Manchester United í fjögur ár. Hann er þrítugur að aldri.