Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 08. september 2020 18:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jamal Lewis í Newcastle (Staðfest)
Jamal Lewis.
Jamal Lewis.
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Jamal Lewis er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Newcastle

Hann kemur frá Norwich fyrir um 15 milljónir punda.

Lewis er 22 ára gamall og féll með Norwich á síðustu leiktíð. Hann var orðaður við Liverpool fyrr í sumar en Liverpool var ekki tilbúið að borga það sem Norwich vildi fá fyrir hann.

Lewis er fjórði leikmaðurinn sem Newcastle fær til sín í sumar. Callum Wilson og Ryan Fraser komu frá Bournemouth og Jeff Hendrick kom frá Burnley.

Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi og Newcastle er spáð 16. sæti. Spurning er hvort spáin hefði verið öðruvísi ef hún hefði verið framkvæmd eftir að leikmennirnir komu.


Athugasemdir
banner
banner
banner