Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. september 2022 22:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Son hefur ekki áhyggjur af markaþurrðinni - „Mun gera allt fyrir liðið"
Mynd: EPA

Manchester City og Tottenham mætast í stórleik í ensku úrvalsdeildinni kl 16:30 á laugardaginn.

Liðin eru jöfn að stigum með 14 stig í 2.-3. sæti eftir sex leiki.


Þetta er góð byrjun hjá Tottenham en Heung-Min Son hefur ekki fundið taktinn, hann hefur ekki náð að koma boltanum í netið og hefur aðeins lagt upp eitt mark.

Hann hefur ekki miklar áhyggjur á meðan liðinu gengur vel.

„Ef ég væri ekki að fá færi myndi ég hafa áhyggjur. Ég fæ færi en í sumum leikjum hef ég verið óheppinn en í öðrum verið slakur að klára færin, ég verð sterkari," sagði Son.

„Þetta mun koma og það er mikið pláss til bætinga, hjá liðinu og hjá mér. Það sem skiptir mestu máli er að við erum að gera vel sem lið. Ég mun gera allt fyrir liðið."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner