Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 08. september 2022 13:30
Elvar Geir Magnússon
Tilfinningarnar báru Richarlison ofurliði eftir leik
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Richarlison felldi tár í faðmi föður síns eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark fyrir Tottenham í 2-0 sigrinum gegn Marseille í Meistaradeildinni í gær.

Þetta var jafnframt fyrsta mark Richarlison, sem kom frá Everton í sumar, í Evrópukeppni.

Á samfélagsmiðlinum tileinkaði hann föður sínum þetta kvöld.

„Þetta voru erfið ár og þú stóðst allt við hlið mér. Ég þarf að þakka þér fyrir að gefast ekki upp á mér og draumi mínum. Að hafa þig viðstaddan á þessu augnabliki gerði það enn sérstakara fyrir mig. Við höldum áfram saman og stærri draumar munu rætast. Takk pabbi" skrifaði Richarlison.


Athugasemdir
banner
banner