Franska stórstjarnan Kylian Mbappe verður ekki með Frakklandi í leiknum gegn Íslandi og Tyrklandi. Þetta er staðfest á heimasíðu franska knattspyrnusambandsins.
Mbappe hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur og ákváðu læknar franska landsliðsins að hann yrði ekki með í næstu tveimur landsleikjum.
Hann hefur nú verið sendur heim en Alassane Plea, leikmaður Borussia Monchengladbach, kemur inn í hans stað.
Mbappe yfirgaf æfingasvæði franska landsliðsins í morgun og verður í meðhöndlun hjá Paris Saint-Germain.
Ísland og Frakkland eigast við á föstudaginn á Laugardalsvelli.
Frakkar eru í 2. sæti H-riðils með 15 stig en Ísland í 3. sæti með 12 stig.
Athugasemdir