Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. október 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Cavani íhugaði að hætta
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani, nýr leikmaður Manchester United, segist hafa íhugað að leggja skóna á hilluna eftir að kærasta hans greindist með kórónuveiruna á dögunum.

Hinn 33 ára gamli Cavani yfirgaf PSG í sumar en hann samdi við Manchester United á mánudaginn.

„Heilsa fjölskyldunnar er í fyrsta sæti og auðvitað íhugaði ég að hætta í fótbolta," sagði Cavani.

„Fjölskylda mín og kærasta mín hefur þurft að þjást vegna kórónuveirunnar. Sannleikurinn er sá að þetta var slæmt því þetta vekur upp ótta."

„Guði sé lof þá jöfnuðum við okkur og hér erum við í dag. Sannleikurinn er hins vegar sá að ég íhugaði að hætta og setjast að í sveitinni."

Athugasemdir
banner
banner
banner