Fotbolti.net
08.10.23 - 14:41
Elvar Geir Magnússon

Arnar um samningsmál Ekroth: Hann verður bara áfram

Olver Ekroth.

Olver Ekroth.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sænski varnarmaðurinn Oliver Ekroth í Víkingi var einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar og valinn í lið ársins sem Fótbolti.net opinberaði í gær.

Ekroth verður 32 ára í janúar, samningur hans er að renna út og hann hefur ekki skrifað undir nýjan.

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings var spurður út í stöðuna á leikmannamálunum og samningsmálum Ekroth.
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2023
TENGT EFNI

Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2023


„Hann verður bara áfram, það er ekki flóknara en það. Þó ég þurfi sjálfur að halda í höndina á honum til að hann skrifi undir þá bara gerir hann það. Ég held að hann sé mjög ánægður hjá okkur. Vonandi náum við að klára það, sama og með aðra leikmenn," segir Arnar.

„Ég vil halda sama hóp og bara bæta í frekar en hitt."

Arnar Gunnlaugs: Núna fáum við okkur gott kampavín og njótum kvöldsins

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.