Arsenal vann öruggan 3-0 sigur á Lyon í Dubai Super Cup í dag.
Öll mörkin komu í fyrri hálfleik en eftir 90 mínútna leik fór fram vítaspyrnukeppni. Þar fengu liðin tækifæri til að næla í eitt stig.
Þar var lítið skorað og svo fór að Arsenal hafði betur 2-1.
Hinn 19 ára gamli Rayan Cherki er reynslu mikill leikmaður Lyon þrátt fyrir ungan aldur en hann ætlaði að vera sniðugur í vitaspyrnukeppni og tók svokallaða Panenka spyrnu þar sem hann vippar boltanum beint á markið.
Skotið var ansi laust og lélegt og átti Karl Hein markvörður Arsenal ekki í neinum vandræðum með hana en hann varði fjórar spyrnur í leiknum.
JDJEJSJSJSJNWNWNWNW nah you can't be serious ???????????????????????????????? pic.twitter.com/O3np9NZRVE
— PME ??????????????????? (@mariEscobarPAWG) December 8, 2022
Athugasemdir