Þór 3 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('77 )
2-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('84 )
3-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('90 )
1-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('77 )
2-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('84 )
3-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('90 )
Bjarni Guðjón Brynjólfsson gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk Þórsara í 3-0 sigri á Dalvík/Reyni í A-deild Kjarnafæðismótsins í Boganum í dag.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleiknum og skoraði Bjarni ekki fyrsta markið fyrr en á 77. mínútu.
Sjö mínútum síðar gerði hann annað mark Þórsara áður en hann fullkomnaði þrennuna þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Þór er búið að vinna báða leiki sína í riðlinum til þessa og mætir svo KF í síðasta leiknum næstu helgi.
Athugasemdir