Hrannar Bogi Jónsson er þjálfari Augnabliks en hann var í leikmannahópi Breiðabliks sem lagði Keflavík í gær 5-2 í Fótbolta.net mótinu.
Hann er 29 ára gamall en hann kom inná sem varamaður í hálfleik. Þá spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik á ferlinum.
Hann á að baki leiki með Leikni F., Reyni S., Erninum og Augnablik þar sem hann hefur verið frá 2017.
Hann tók við þjálfun liðsins fyrir áramót ásamt Eiríki Raphael Elvy. Liðið leikur í 3. deild.
Athugasemdir