Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 09. janúar 2022 23:51
Brynjar Ingi Erluson
Zlatan jafnaði Ronaldo í sigrinum á Venezia
Zlatan Ibrahimovic
Zlatan Ibrahimovic
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic skoraði í 3-0 sigri Milan á Venezia í dag en hann jafnaði þar með met Cristiano Ronaldo.

Ronaldo setti met í 3-1 sigri United á Burnley þann 30. desember en hann hefur skorað gegn 80 félögum á ferlinum.

Zlatan hafði skorað gegn 79 mismunandi andstæðingum fram að leiknum í dag en mark hans þýðir það að hann og Ronaldo eru jafnir. Þeir hafa báðir skorað gegn 80 liðum í fimm stærstu deildum Evrópu frá aldamótum.

Svíinn er með 492 mörk í 802 leikjum á ferlinum en hann hefur skorað 8 mörk í 17 deildarleikjum á þessu tímabili og þá lagt upp tvö mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner