Íslenska landsliðið gerði jafntefli gegn Eistlandi í æfingaleik í Portúgal í gær.
Ísland lenti undir en Andri Lucas Guðjohnsen jafnaði metin úr vítaspyrnu í uppbótartíma.
Ísland mætir Svíþjóð í öðrum æfingaleik á fimmtudaginn en Andri Lucas mun ekki taka þátt í þeim leik en það var búið að ákveða það fyrirfram. Einnig verða Nökkvi Þeyr Þórisson, Arnór Ingvi Traustason og Guðlaugur Victor Pálsson ekki með.
Það var fyrirfram ákveðið með Nökkva og Arnór en Guðlaugur Victor þurfti að fara meiddur af velli í leiknum í gær.
Arnór Ingvi lék bara fyrri hálfleikinn í gær og Nökkvi var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik.
Guðlaugur Victor meiddist í leiknum gegn Eistlandi og getur ekki verið með gegn Svíum, en það var fyrirfram ákveðið að Andri Lucas, Nökkvi Þeyr og Arnór Ingvi myndu bara spila fyrri leikinn í verkefninu.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 8, 2023