Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. febrúar 2021 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Neymar: Ég er ekki óþroskaður
Neymar
Neymar
Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar segist hafa gaman af því að fara í teiti og þá hafi hann þroskast mikið á síðustu árum en hann ræðir þetta í viðtali við heimasíðu Paris Saint-Germain.

Neymar hefur í gegnum árin verið gagnrýndur fyrir að halda vegleg afmæli og oft verið fjarverandi vegna þeirra.

Þá hefur hann yfirleitt fengið frí í mars til fagna afmælum systur sinnar en óvíst er hvort Mauricio Pochettino gefur honum leyfi fyrir því í ár.

Neymar ræddi við síðu PSG um partýstandið og afmælin en hann segist ekki vera óþroskaður.

„Þetta er mjög persónuleg umræða en ég meina hverjum finnst ekki gaman að fara í teiti? Það vilja allir hafa gaman, fara út með vinum, fjölskyldu og ég veit hvenær ég get farið og hvenær ekki," sagði Neymar.

„Þetta er öfugt við það sem fólk heldur, að ég sé óþroskaður og að ég viti ekki hvað ég sé að gera. Ef maður er með 100 prósent einbeitingu á að spila bara fótbolta þá myndi ég springa og þess vegna mun ég aldrei hætta að skemmta mér," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner