Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. febrúar 2021 11:03
Magnús Már Einarsson
Ólíklegt að æfingamót kvennalandsliðsins fari fram
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólíklegt er að kvennalandslið Íslands fari á æfingamót í Frakklandi í febrúar eins og fyrirhugað var.

Mótið er í óvissu út af kórónuveirufaraldrinum en Noregur hefur til að mynda dregið sig úr keppni.

Upphaflega átti Þorsteinn Halldórsson, nýráðinn landsliðsþjálfari, að tilkynna landsliðshópinn fyrir komandi leiki á fréttamannafundi í gær.

Fundinum var frestað þar til í dag en nú er aftur búið að fresta fundinum þar sem óvíst er hvort mótið fari fram.

Frakkland, Ísland, Noregur og Sviss áttu að taka þátt í mótinu 17-23. febrúar næstkomandi.

Athugasemdir
banner
banner