Fotbolti.net
09.04.20 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Pálmi Rafn aðstoðaði öldruð hjón í sóttkví

Pálmi Rafn aðstoðaði öldruð hjón í sóttkví
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Einarsson sagði skemmtilega sögu í útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær. Íslenski fótboltinn var til umræðu og skaut Magnús inn einni sögu af leikmanni KR.
Pálmi Rafn Pálmason er starfsmaður Vís og hann tók að sér óvenjulegt verkefni vegna COVID-19.

„Öldruð hjón, stuðningsmenn KR, þau eru í sóttkví og gátu þess vegna ekki farið út úr húsi til að skila númeraplötunni á bílnum sínum til Samgöngustofu," sagði Magnús.

„Okkar maður tölti yfir til þeirra með verkfæratöskuna, skrúfaði plötuna af og skilaði númerunum inn. Þarna fengu aldraðir stuðningsmenn KR aðstoð frá einum besta leikmanni liðsins."

Hlusta má þessa sögu í spilaranum hér að neðan og hefst sögustundin á 34. mínútu.

<b>Útvarpsþátturinn</b> - Stóru málin við páskahringborðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.