Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 09. apríl 2021 22:00
Victor Pálsson
Drinkwater vill spila fyrir Chelsea
Mynd: Getty Images
Danny Drinkwater er ekki búinn að gefa ferilinn hjá Chelsea upp á bátinn eftir að hafa fengið afar takmarkað að spila síðustu ár.

Drinkwater kostaði Chelsea 35 milljónir punda frá Leicester árið 2017 en hann hefur nánast ekkert leikið síðan þá. Síðasti leikur Drinkwater kom árið 2018.

Í dag leikur Drinkwater með Kasimpasa í Tyrklandi á láni en hann vill snúa aftur til Chelsea þegar sumarglugginn opnar.

„Ég vil halda áfram hjá Chelsea. Mér líður eins og ég eigi óklárað verkefni hjá félaginu," sagði Drinkwater.

Drinkwater var svo spurður út í það hvort hann gæti fundið sitt besta form hjá félaginu undir stjórn Thomas Tuchel sem kom fyrr á tímabilinu.

„Ég vil halda það. Ég veit ekki hvort það sé sniðugt að snúa aftur til Chelsea og segja svoleiðis hluti. Það er löng leið framundan."
Athugasemdir
banner
banner