Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 09. maí 2021 17:00
Aksentije Milisic
KR og Alvotech gera samstarfssamning
Mynd: KR
Líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech og knattspyrnudeild KR hafa skrifað undir samstarfssamning fyrir keppnistímabilið 2021. Þetta tilkynnti knattspyrnudeild KR í dag.

„Líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech og knattspyrnudeild KR hafa skrifað undir samstarfssamning fyrir keppnistímabilið 2021. Samningurinn nær til allra knattspyrnuflokka KR. Það voru Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech og Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR sem undirrituðu samninginn í KR heimilinu í Frostaskjóli.
Samningurinn felur í sér ýmis konar samstarf og viðburði en auk þess mun Alvotech greiða árangurstengda bónusa nái félagið tilteknum markmiðum,"
segir í tilkynningu frá KR.

„Sérstök hvatningarverðlaun í nafni Alvotech verða veitt í lok tímabilsins til þeirra leikmanna sem skara fram úr í knattspyrnu karla og kvenna í hverjum flokki fyrir sig. Alvotech kostar jafnframt „Allir sem einn daginn“ sem er sérstakur hátíðisdagur tileinkaður yngri flokkum KR. Markmið dagsins er að hvetja börn til þátttöku í starfi félagsins og efla tengsl félagsins við nær samfélagið í Vesturbænum. Róbert Wessman sagði við þetta tilefni að stuðningur við íþróttastarf félli einstaklega vel að starfsemi fyrirtækisins sem miðar að því að bæta heilsu og lífsgæði fólks."

„Við vitum einnig að þátttaka í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi er mikilvæg forvörn í baráttunni gegn vímuefnanotkun og það er okkur því sérstök ánægja að styðja með þessum hætti við ungliðastarf nágranna okkar í Vesturbænum“. Alvotech tekur við samningnum af systurfélagi sínu Alvogen sem hefur verið styrktaraðili frá árinu 2014. Alvotech er jafnframt styrktaraðili körfuknattleiksdeildar KR,"
segir að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner