Ísland mátti þola þungt 1-6 tap gegn heimsmeisturum Spánar þegar liðin mættust á Laugardalsvelli fyrr í kvöld. Framherjinn Diljá Ýr Zomers lék í óvenjulegri stöðu hægri vængbakvarðar í liði Íslands í kvöld og var til viðtals við fulltrúa Fótbolta.net á Laugardalsvelli að leik loknum.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 6 Spánn
„Það er alltaf svekkjandi að tapa og þá sérstaklega þegar það er svona stórt. En eins og rætt var um eftir leikinn þá erum við ennþá með sama markmið og það er ennþá möguleiki. Núna snýst þetta bara um að við allar einbeitum okkur að því að koma í sem bestu standi inn í umspilið og klára það.“
Sagði Diljá um tilfinngar sínar eftir leikinn og vísar í þá góðu stöðu sem 3.sæti riðilsins tryggir Íslandi þegar dregið verður í umspil um sæti á HM síðar í mánuðinum.
Spænska liðið sýndi allar sínar bestu hliðar á Laugardalsvelli í kvöld og léku sér á köflum að liði Íslands. Finnst Diljá leikurinn endurspegla raunverulegan mun á liðnum eða hitti Ísland bara ekki á sinn dag?
„Mér fannst svolítið að þær gætu tekið skot á markið og það færi bara inn. Þetta eru heimsklassaleikmenn en við hefðum getað gert betur í varnarleik og samskiptum. Eins þegar við erum með boltann hefðum við getað tengt fleiri sendingar og haldið meiri ró.“
Diljá byrjaði leikinn i annari stöðu en hún má teljast vön. Vanalega er Diljá með fremstu mönnum en leysti stöðu vængbakvarðar í leiknum. Hvernig var það fyrir hana?
„Þetta var bara fint, það er alltaf þægilegt að hafa Guðrúnu og Glódísi fyrir aftan sig sem hjálpar. Þetta er auðvitað ný staða fyrir mig og ég reyndi að leysa það sem best. Ógeðslega erfitt, þær þrefalda á mann á köntunum og maður er mættur í teiginn að dekka sem hálfgerður miðvörður og mér fannst ég gera það ágætlega en örugglega margt sem ég hefði getað gert betur.“
Sagði Diljá en allt viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér að ofan.






















