Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. júlí 2020 00:14
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin úr leikjum kvöldsins á Englandi
Meistararnir unnu Brighton
Meistararnir unnu Brighton
Mynd: Getty Images
Mörkin úr öllum fjórum leikjum kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni eru aðgengileg í þessari frétt en samtals voru ellefu mörk í leikjunum.

Manchester City bauð til veislu á Etihad en liðið vann 5-0 og var David Silva í essinu sínu.

Manchester City 5 - 0 Newcastle United

Burnley lagði West Ham að velli, 1-0. Jay Rodriguez gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.

West Ham 0 - 1 Burnley

John Egan skoraði sigurmark Sheffield United í uppbótartíma gegn Wolves.

Sheffield United 1 - 0 Wolves

Mohamed Salah var þá aðalmaðurinn er Liverpool vann Brighton 3-1. Tvö mörk og stoðsending.

Brighton 1 - 3 Liverpool
Athugasemdir
banner
banner
banner